Tilnefningar til knapaverðlaunaUppskeruhátíð hestamanna verður haldin laugardagskvöldið 28. október n.k. á Reykjavík Hilton Nordica. Hátíðin er haldin af LH og FHB og mun verða sérlega glæsileg.
Nefndin góða sem tók að sér það verkefni að fara yfir árangur keppanda og ræktunarbúa kepnnishesta á liðnu keppnistímabili er tilbúin með tilnefningar í alla flokka. Allir tilnefndir hljóta viðurkenningu á hátíðinni, auk þess sem ræktunarbúi ársins verða veitt verðlaun.
Athugið að takmarkaður fjöldi miða er í boði og miðasala fer fram á [email protected] eða í síma 444-5029. Það borgar sig að kaupa miða sem fyrst og eins að bóka hótelherbergi á sama stað.
En hér eru tilnefningarnar í stafrófsröð í hverjum flokki:
Efnilegasti knapi ársins
• Anna Bryndís Zingsheim
• Ásdís Ósk Elvarsdóttir
• Finnbogi Bjarnason
• Máni Hilmarsson
• Sonja Sigurgeirsdóttir
Gæðingaknapi ársins
• Daníel Jónsson
• Finnur Bessi Svavarsson
• Jakob Svavar Sigurðsson
• Sigurbjörn Bárðarson
• Siguroddur Pétursson
Íþróttaknapi ársins
• Bergur Jónsson
• Jakob Svavar Sigurðsson
• Guðmundur Friðrik Björgvinsson
• Þórarinn Eymundsson
• Þórarinn Ragnarsson
Keppnishestabú ársins
• Efri-Rauðalækur
• Hamarsey
• Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar
• Litla-Brekka
• Vesturkot
Kynbótaknapi ársins
• Bergur Jónsson
• Daníel Jónsson
• Guðmundur Fr. Björgvinsson
• Jakob Svavar Sigurðsson
• Sigurður Vignir Matthíasson
Skeiðknapi ársins
• Davíð Jónsson
• Guðmundur Friðrik Björgvinsson
• Konráð Valur Sveinsson
• Sigurbjörn Bárðarson
• Svavar Örn Hreiðarsson
Knapar í flokknum „Knapi ársins“ verða ekki kynntir fyrr en í hátíðardagskrá Uppskeruhátíðar.
Hestamenn eru hvattir til að eiga hátíðlega kvöldstund saman á Reykjavik Hilton Nordica.
Félag hrossabænda & Landssamband hestamannafélaga