Síðastliðið vor gerði ég stutta úttekt á þeim ungu stóðhestum sem komu fram á stóðhestasýningu í Langholti. Mig langar til gamans að segja frá því hvernig þessir hestar plummuðu sig þegar á hólminn kom. Þennan gamla pistil er hægt að skoða í heild sinni í lok greinarinnar. Fyrsti folinn sem ég nefni í pistlinum er Skjálfti frá Bakkakoti,“Skjálfti sjálfur er hágengur og lipur foli með mjög efnilegt skeið af svona ungum hesti að vera“.
Allar gangtegundir góðar og hreinar – spennandi foli þar á ferðinni.“ Skjálfti komst inná Landmót og fékk 8,06 í aðaleinkunn, byggingin ekkert sérstök 7,76 með hófana besta uppá 8,5. Gangtegundir jafnar og góðar, 8,5 á línuna fyrir utan 7,5 fyrir brokk og 8,0 fyrir skeið.
Umsagnir vísa í góðan fótaburð, rými á tölti, góðan höfuðburð, ásækni og þjálni. Skjálfti var í notkun í Landeyjum og fékk til sín 18 merar. Skjálfi verður væntanlega í þjálfun hjá Erlingi aftur í vetur og stefnan tekin á kynbótadóm næsta vor eða það þarnæsta. Skjálfti er með einstaklega gott geðslag, er rólegur og mikill höfðingi í umgengni sem og í reið.
Hér er því ennþá – spennandi foli á ferðinni þó að ekki sé hægt að segja að hann hafi slegið í gegn síðastliðið sumar. Skjálfti er undan Sæ frá Bakkakoti sem hlaut Heiðursverðlaun á mótinu, Sær hlaut þó ekki Sleipnisbikarinn, hann féll í skaut Hróðurs frá Refsstöðum, ef landsmótið væri haldið núna hefði hann hins vegar endað hjá Sæ frá Bakkakoti, sem var einnig hæstur um vorið.
Næsti hestur er Grunnur frá Grund, ég fékk þann heiður eftir pistilinn að fá fallegt merfolald skýrt í höfuðið á mér. Hvort það hafi komið af góðu verða aðrir að dæma um. Umsögn um Grunn var eftirfarandi: „Hann er getumikill sérstaklega í ljósi þess hversu stór hann er, Erlingur í Langholti virtist hálfgerður skólastrákur á þessu virkjamikla tryppi á fjórða vetur.
Grunnur sýndi okkur góða takta, einkenni heilsteypts alhliða hest með mjög góðar gangtegundir og á eflaust eftir að bæta sig mikið með tímanum, stórir hestar þurfa tíma og hann á eflaust eftir að ná toppi getu sinnar eftir einhver ár“ Grunnur sýndist sem heilsteyptur alhliða hestur með jafnar og góðar gangtegundir, 8,5 á línuna fyrir utan brokk og stökk þar sem hann hlýtur 8,0. Umsagnir dóms segja að hér sé um rúman, takgóðan og öruggan hest að ræða með góða reisingu. Viljinn ásækinn og þjáll.
Grunnur er væntanlega ekki búinn að sýna sitt besta eins og fram kom í gamla pistlinum. Grunnur fékk til sín góðan hóp af hryssum og verður væntanlega stefnt með hann í dóm aftur að ári. Grunnur er undan Þóroddi sem er að byrja vel sem kynbótahestur, þrjú hross komin í 1. Verðlaun undan honum af sjö hrossum með fullnaðardóm. Þóroddur á eflaust eftir að koma fram með góð hross á næstu árum og láta til sín kveða á næsta Landsmóti.
Síðan fjallaði ég um skjóttan fola sem heitir Bliki frá Nýjabæ, hann er fjögurra vetra eins og hinir. „Bliki frá Nýjabæ virkar ..léttur hestur og hreyfingarnar einstaklega mjúkar og fimar. Allur gangur góður og skeiðið sérstaklega efnilegt einnig“. Bliki slasaðist því miður rétt fyrir sýningu á beygjusin og var því ekki sýndur. Erlingur segir hér sé um verulega spennandi fola að ræða sem hefði getað blandað sér í toppbaráttuna á Landsmóti hefði hann gengið heill til skógar. Bliki er í eigu Þýsk-Franskra aðila og hefur verið síðan hann var ótaminn.
Bliki er rauðskjóttur undan Illing frá Tóftum og 1. Verðlauna hryssunni Styttu frá Nýjabæ. Bliki verður aftur í þjálfun hjá Erlingi í vetur og stefnt á sýningu næsta vor. Bliki fékk til sín á bilinu 25 – 30 hryssur í sumar þrátt fyrir að hafa ekki verið sýndur. Illingur faðir Blika stóð sig gríðarlega vel á Landsmóti í A-flokki eins og flestir vita. Hann á sex sýnd afkvæmi og eru tvö þeirra með 1. Verðlaun.
Örn frá Efri-Gegnishólum kom einnig fram á stóðhestasýningunni í Halakoti „Örn frá Efri-Gegnishólum hefur einstakan fótaburð og frábærar gangtegundir, alhliða hestur sem hefur margt frá Ófeigi frá Flugumýri sem leynist bæði í móður- og föðurætt. Með fótaburðinum kemur síðan mýkt og fjöðrun, mjög spennandi hestur hann Örn þó gjarnan mætti hann vera með betri háls til að njóta sín til fulls“. Örn stóð sig frábærlega um vorið og hlaut 8,63 fyrir hæfileika, fimm vetra gamall. Hann hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt og vilja. Örn var seldur um vorið og eru kaupendur Árbakki-hestar ehf. og Piet Hoyos í Austurríki. Örn er undan Aron frá Strandarhöfði sem hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár. Aron á 43 sýnd afkvæmi í dag, af þeim eru 14 með 1. Verðlaun.
Sædynur frá Múla kom fram á Landsmóti eftir góða sýningu um vorið. Í pistlinum kemur fram „Sædynur er glæsilegur hestur á velli. Hann virkar þó ekki á mann eins ljúfur og Roði bróðir sinn, virkar örlítið viðkvæmur og harður“. Sædynur hlaut 9,0 á línuna fyrir hæfileika fyrir utan fegurð í reið þar sem hann hlaut 9,5. Glæsilegar einkunnir þar á skeiðlausum hesti. Umsagnir í dómi vísa í taktgóðan, skrefmikinn, mjúkan, þjálan, vakandi fola með mikinn fótaburð og fas. Sædynur er í eigu Finns Ingólfssonar í Vesturkoti á Skeiðum og við eigum eflaust eftir að sjá meira af þessum fasmikla hesti. Sædynur er undan Dyn frá Hvammi sem er alltaf að skjóta afkvæmum sínum uppá stjörnuhiminn með reglulegu millibili. Dynur á 55 sýnd afkvæmi og hafa 21 þeirra hlotið 1. Verðlaun.
Aðrir fimm vetra hestar sem stóðu sig vel eru seldir úr landi, töltarinn mikli Tenór frá Túnsbergi er á leiðinni til Danmekur og glæsilegi fjórgangarinn, Samber frá Ásbrú er á leið til Sviss.
Einnig komu fram eldri hestar á sýningunni sem ég fjallaði ekkert sérstaklega um þar sem ég sá ekki til þeirra því miður, t.d. Kvistur frá Skagaströnd sem sló rækilega í gegn á Landsmóti og ekki sé minnst á Aris frá Akureyri sem kom heldur betur við sölu einnig.
Núna er bíða fram á næsta vor, þegar næsti árgangur lítur dagsins ljós. Á þessari sýningu má sjá að brot af bestu stóðhestsefnum landsins kom fram.
Gamla pistilinn má lesa hér:
http://213.167.147.176/Frettir/4211/




















