Stóðhestaflóran

Nú fer óneitanlega að styttast í kynbótasýningar sumarsins og því fylgir alltaf mikil eftirvænting á landsmótsári. Stóðhestaflóran okkar er mikil og fjölbreytt. Stundum full fjölbreytt! Ég fór á stóðhestasýninguna í Langholti um síðustu helgi og barði augum þá ungu fola...

Nú fer óneitanlega að styttast í kynbótasýningar sumarsins og því fylgir alltaf mikil eftirvænting á landsmótsári. Stóðhestaflóran okkar er mikil og fjölbreytt. Stundum full fjölbreytt! Ég fór á stóðhestasýninguna í Langholti um síðustu helgi og barði augum þá ungu fola sem þar komu fram. Það var skemmtilegt að ætterni folanna var mjög fjölbreytt, enginn faðir var afgerandi og það mátti sjá syni margra af ungu stóðhestunum okkar sem eru að koma með sín fyrstu afkvæmi í dóm.

Ég ætla að velta upp ættum nokkurra fola sem ég sá þar og að sjálfsögðu er hér um persónulegar skoðanir að ræða.Fyrsti folinn var Skjálfti frá Bakkakoti. Skjálfti er undan Sæ frá Bakkakoti sem hefur verið að sanna sig sem úrvals kynbótahestur. Það kemur manni reyndar ekkert á óvart að Sær sé að virka vel – hann er samansafn af Ófeigi frá Flugumýri og Orra frá Þúfu.

Sú blanda virðist svín virka, Orri og Ófeigur bæta hvorn annan upp ef vel heppnast. Móðurætt Skjálfta kannast ég nokkuð við, Magnús Kristinsson á góðan reiðhest undan Spurningu ömmu Skjálfta, ég hafði milligöngu um sölu á 1. Verðlauna hryssu undan Sögu, sem er móðir Skjálfta. Einnig er Smella frá Bakkakoti úrvals klárhryssa undan Spurningu þó fegurðinni sé ekki fyrir að fara. Davíð frá Ögmundarstöðum þekkti ég frá tíð Eiríks Guðmundssonar.

Allavega virðist móðurætt Skjálfta vera traust þótt Saga sé ekki sýnd sjálf. Skjálfti sjálfur er hágengur og lipur foli með mjög efnilegt skeið af svona ungum hesti að vera. Allar gangtegundir góðar og hreinar – spennandi foli þar á ferðinni.

Síðan kom foli undan Þóroddi frá Þóroddsstöðum. Það hafa margir beðið spenntir eftir að vita hvernig afkvæmi Þóroddur gefur. Oft eiga heilsteyptir mjúkkgengir gæðingar erfitt með að erfa frá sér höfðingsskapinn. Spurningin er ekki hvort Þóroddur eigi eftir að gefa góð reiðhross sem verður örugglega raunin – heldur hvort hann nái að gefa frá sér toppa. Grunnur frá Grund gefur góð fyrirheit. Hann er getumikill sérstaklega í ljósi þess hversu stór hann er, Erlingur í Langholti virtist hálfgerður skólastrákur á þessu virkjamikla tryppi á fjórða vetur.

Grunnur sýndi okkur góða takta, einkenni heilsteypts alhliða hest með mjög góðar gangtegundir og á eflaust eftir að bæta sig mikið með tímanum, stórir hestar þurfa tíma og hann á eflaust eftir að ná toppi getu sinnar eftir einhver ár. Móðurætt Grunns er einnig góð, faðir Glímu frá Vindheimum er Mökkur frá Varmalæk sem hefur sannað sig útí Svíþjóð og gefið aragrúa af gæðingum þar í landi. Glíma á Baldurssoninn Galdur frá Grund sem son. Það er úrvals góður alhliða hestur en það er hætt við því að Grunnur eigi eftir að falla í sömu gryfju og bróðir sinn, þótt byggingin sé góð þarf útlitið ekki að heilla.

Næsti foli á fjórða vetur var Illingssonur frá Tóftum sem Bliki heitir frá Nýjabæ. Sjálf var ég aldrei sérstaklega hrifinn af Illing, fannst hann vera framlár og ýmislegt annað sem heillaði mig ekki. Bliki frá Nýjabæ virkar hins vegar vera léttari hestur og hreyfingarnar einstaklega mjúkar og fimar. Allur gangur góður og skeiðið sérstaklega efnilegt einnig. Móðurætt Blika er mjög góð, Stytta frá Nýjabæ er virkjamikil hryssa með mikinn frampart enda komin af hesti sem var frægur nánast eingöngu fyrir þann þátt, Stormi frá Stórhóli. Móðir Styttu er síðan Flipa frá Nýjabæ sem var einnig mjög hátt dæm hryssa og hefur gefið af sér mörg góð hross.

Á sýningunni voru einnig eldri hestar. Margir hverjir einstaklega spennandi og góðir á sinn hátt. Örn frá Efri-Gegnishólum hefur einstakan fótaburð og frábærar gangtegundir, alhliða hestur sem hefur margt frá Ófeigi frá Flugumýri sem leinist bæði í móður og föðurætt. Með fótaburðinum kemur síðan mýkt og fjöðrun, gæðin í töltinu finnst mér koma mikið frá Óði frá Brún í gegnum Aron. Mjög spennandi hestur hann Örn þó gjarnan mætti hann vera með betri háls til að njóta sín til fulls.
Sædynur frá Múla er athyglisverður hestur.

Roði frá Múla sem er náskyldur Sædyn hefur verið að sanna sig sem úrvals kynbótahestur og ég spurði mig oft hvaðan fótaburðurinn kæmi í afkvæmum Roða því sjálfur var Roði ekki hágengur hestur. En Sædynur virðist hafa þau gen betur sýnileg enda glæsilegur hestur á velli. Hann virkar þó ekki á mann eins ljúfur og Roði, virkar örlítið viðkvæmur og harður. Enda er það kannski viðbúið þar sem Dynur frá Hvammi kemur inn í stað Orra föður síns. En Höfða-Gustur virðist vera að blandast vel við Orra eins og við sjáum t.d. í Hrannari frá Þorlákshöfn, Sömbu frá Miðsitju þar sem framparturinn er að nýtast einstaklega vel og hrossin eru klipin í kverk eins og í Sædyn, sem er undan Höfða-Gustsdóttur.

Talandi um þessa blöndu þá heillaði mig mikið hesturinn Samber frá Ásbrú sem er einmitt undan Sömbu frá Miðsitju, Orra og Kröfludóttur. Samber er síðan undan Gauta frá Reykjavík sem virðist vera að koma í gegn sem úrvals fjórgangsfaðir, Auður frá Lundum er Gautasonur og nú Samber, báðir mjög efnilegir fjórgangshestar.

Margir úrvals góðir hestar komu fram á sýningunni í Langholti og of langt mál að fara í gegnum þá alla og því ætla ég að láta staðar numið hér. Óðinn Örn á hrós skilið að hafa frumkvæðið að slíkri sýningu sem er orðin gríðarlega vinsæl og á eflaust eftir að vera framhald á um ókomna tíð.

Veðurguðirnir voru einnig í liði með okkur á laugardaginn og það munar heldur betur um það. Það er nokkrar myndir inná síðunni www.hest.is fyrir þá sem átti ekki því lána að fagna að komast á sýninguna.