Álfur frá Selfossi

Sequence Image 1 / 0
alfur_christina_0alfur_christina_0


1. verðlaun fyrir afkvæmi á LM2011:
Álfur gefur hross í rúmu meðallagi að stærð með frítt höfuð, beina neflínu og vel opin augu. Hálsinn er reistur og mjúkur en nokkuð djúpur við háar herðar. Bakið er breitt og vöðvafyllt en stundum svagt, lendin öflug en áslaga. Afkvæmin eru hlutfallarétt en alloft nokkuð brjóstdjúp. Fætur eru prúðir og þurrir með öflugar sinar en nágengir að aftan. Hófar eru djúpir en frekar þröngir og prúðleiki í rúmu meðallagi. Álfur gefur taktgott, skrefmikið og mjúkt tölt og lyftingarmikið brokk. Flest afkvæmin eru alhliðageng, viljug og þjál og þau fara feikn vel með háum fótaburði.
Álfur gefur fríð og reist hross. Afkvæmin eru viljug, þjál og hágeng, flest með öllum gangi, klárgangur betri.