Stóðhesturinn Helgi frá Neðri-Hrepp IS2006135617 er nú í þjálfun hjá Guðmundi Björgvinssyni á Ingólfshvoli. Stefnt er með Helga á Landsmót í sumar, auk þess er áætlað að hann komi fram í vetur. Helgi er á sjötta vetur, grár að lit. Faðir hans er Keilir frá Miðsitju (8.63), undan Ófeigi frá Flugumýri. Móðir Helga er Gletta frá Neðri – Hrepp (8.36) Hæfileikar 8.86, Gletta er undan Gusti frá Hóli. Helgi hefur hlotið einkunnina 8.13, og kynbótamat hans er 117. Þess má geta að Vaka móðir Glettu, er komin út af Kolfinni frá Kjarnholtum og Spurningu frá Kleifum rétt eins og gæðingamóðirin Álfadís frá Selfossi.
Verð á folatolli. 55 Þús til 1 Maí. Staðfestingargjald 10.þús
Upplýsingar um Notkun. Einar Víðir Einarsson sími 869 3248



















