Hin árlega stórsýning Fáks verður haldin í Reiðhöllinni Víðidal dagana 5.-7. maí 2006. Undirbúningur er hafinn af miklum krafti og margt spennandi verður í boði, eins og vera ber á landsmótsári. Sem dæmi má nefna afkvæmi nokkurra af þeim hestum sem sýndir verða með afkvæmum á Landsmótinu í sumar, spennandi töltslaufur með Ragga Pet, áhugaverðar ættartengingar manna og hesta verða raktar, stóðhestaalbræður, líkir en ólíkir koma fram, toppkonur á toppstóðhestum, unglingar með glæst munstur auk fjölda frægra hesta sem enn er of snemmt að nefna.
Undirbúningsnefnd hefur hafið störf af krafti og eru þar engir byrjendur á ferð svo búast má við glæsilegri sýningu. Svo nú er um að gera að merkja við í dagatalinu og taka þessa helgi frá, þetta er sýning sem enginn alvöru hestamaður má láta fram hjá sér fara. Á næstu vikum munu koma tilkynningar og meiri upplýsingar eftir því sem vilyrðum fyrir glæsigæðingum fjölgar! Nefndin er einnig opin fyrir hugmyndum og ef þið lumið á einni eða tveimur þá er um að gera að senda tölvupóst á ragnar@frodi.is.














