Takti frá Tjarnarlandi og Viðari Ingólfssyni fataðist ekki takturinn í úrslitum B flokks á Hvítasunnumóti Fáks. Þeir komu efstir inn í úrslit og stóð aldrei ógn af keppinautum sínum. Vilji og fas er aðall þessa hests og brokkið úrval.
Það verður óneitanlega gaman að sjá hann keppa á Iðavöllum í sumar, en stefnt er með hann á FM07.














