Nú á föstudaginn hefst bikarkeppni hestamannafélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Keppt verður í þrígangi, brokk, hægt stökk og fegurðartölt. Stutt og skemmtileg mót þar sem áhorfendur eru líka þátttakendur og síðan er það spurning um hvaða hestamannafélag er best ríðandi.
Eftirfarandi mót verða haldin í mótaröðinni:
Föstudaginn 13. febrúar – Þrígangsmót -Reiðhöll Gusts (brokk, hægt stökk og fegurðartölt)
Föstudaginn 27. febrúar – Hraðafimismót – Reiðhöllinni í Keflavík (tími ræður röð – tveir úr hverju félagi sem keppa í þrautabraut, ásamt einum skeiðhesti og einum brokkhesti á tíma í gegnum höllina)
Föstudaginn 13. mars – Töltmót – Reiðhöllinni í Víðidal
Stigaútreikningar verða þannig:
1. Sæti gefur 10 stig
2. Sæti gefur 8 stig
3. Sæti gefur 6 stig
4. Sæti gefur 4 stig
5. Sæti gefur 3 stig
6. Sæti og öll sæti eftir það gefa 1 stig.
Hvert hestamannafélag velur liðstjóra (landsliðseinvald) og er hann tengiliður í öllu sem viðkemur mótunum og ábyrgur fyrir sitt hestamannafélag.
Á hverju móti verður öflugasta stuðningsliðið valið (það kemur stuðningslið frá hverju hestamannafélagi) og fær það stuðningsmannalið, sem stendur sig best á öllum keppnunum þremur, bikar á lokamótinu eins og það hestamannafélag sem sigrar keppnina.














