Þrumufleygur flýgur!

Rykmökkurinn eftir Þrumufleyg frá Álfhólum liggur enn yfir Selfoss eftir að John Kristinn reið úr braut nú í kvöld á Þrumufleyg. John tók hann til kostana og uppskar 9,5 fyrir tölt, 9,5 fyrir brokk, 9,5 fyrir vilja og geðslag, 9...

Rykmökkurinn eftir Þrumufleyg frá Álfhólum liggur enn yfir Selfoss eftir að John Kristinn reið úr braut nú í kvöld á Þrumufleyg. John tók hann til kostana og uppskar 9,5 fyrir tölt, 9,5 fyrir brokk, 9,5 fyrir vilja og geðslag, 9 fyrir fegurð í reið og 9 fyrir hægt tölt. Samtals 8,43 fyrir hæfileika og 8,04 fyrir sköpulag. Aðaleinkunn 8,27. Athyglisvert er þó að klárinn nær ekki Landsmóts lágmörkum en þau eru 8,30 en hann á yfirlitsýningu ennþá eftir. Þrumufleygur er undan Þóroddi frá Þóroddstöðum og tölthryssunni Þyrnirós frá Álfhólum.

Dagurinn hefur verið góður fyrir kynbótahestinn Þórodd frá Þóroddstöðum en dóttir hans Gjöf frá Vindási fór einnig frábæran hæfileika dóm, jafnvíg alhliða hryssa. Hæfileika upp á 8,58 og aðaleinkunn 8,24. Sýnandi Sigurður V. Matthíasson

IS2006184674 Þrumufleygur frá Álfhólum
Örmerki: 352206000061211
Litur: 2520 Brúnn/milli- stjörnótt
Ræktandi: Rósa Valdimarsdóttir
Eigandi: Rósa Valdimarsdóttir
F.: IS1999188801 Þóroddur frá Þóroddsstöðum
Ff.: IS1987187700 Oddur frá Selfossi
Fm.: IS1984287011 Hlökk frá Laugarvatni
M.: IS1996284669 Þyrnirós frá Álfhólum
Mf.: IS1993184988 Ögri frá Hvolsvelli
Mm.: IS1979284670 Vaka frá Álfhólum
Mál (cm): 141 – 130 – 136 – 63 – 143 – 38 – 47 – 43 – 6,6 – 29,0 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 8,7 – V.a.: 8,5
Sköpulag: 7,0 – 7,5 – 9,0 – 8,0 – 8,5 – 7,0 – 9,0 – 8,5 = 8,04
Hæfileikar: 9,5 – 9,5 – 5,0 – 8,5 – 9,5 – 9,0 – 7,0 = 8,43
Aðaleinkunn: 8,27
Hægt tölt: 9,0 Hægt stökk: 8,0
Sýnandi: John Kristinn Sigurjónsson

IS2006284987 Gjöf frá Vindási
Örmerki: 352098100011419
Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt
Ræktandi: Auður Stefánsdóttir
Eigandi: Stefán Pálsson
F.: IS1999188801 Þóroddur frá Þóroddsstöðum
Ff.: IS1987187700 Oddur frá Selfossi
Fm.: IS1984287011 Hlökk frá Laugarvatni
M.: IS1997284980 Valka frá Vindási
Mf.: IS1990157003 Galsi frá Sauðárkróki
Mm.: IS1993286686 Blíða frá Holtsmúla 1
Mál (cm): 141 – 139 – 65 – 143 – 27,5 – 17,0
Hófa mál: V.fr.: 8,7 – V.a.: 8,1
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 8,5 – 7,5 – 8,0 – 7,0 – 8,0 – 6,5 = 7,98
Hæfileikar: 8,5 – 8,5 – 9,0 – 7,5 – 9,0 – 8,5 – 8,5 = 8,58
Aðaleinkunn: 8,34
Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 6,5
Sýnandi: Sigurður Vignir Matthíasson