Tindur heim á Varmalæk

Tindur frá Varmalæk er nú kominn heim á Varmalæk en hann hefur verið í þjálfun hjá Þórarni Eymundssyni í vetur. Tindur er í mjög góðu formi og alveg feikna góður, hann sinnir nú hryssum á húsnotkum heima á Varmalæk fram...

Tindur frá Varmalæk er nú kominn heim á Varmalæk en hann hefur verið í þjálfun hjá Þórarni Eymundssyni í vetur. Tindur er í mjög góðu formi og alveg feikna góður, hann sinnir nú hryssum á húsnotkum heima á Varmalæk fram undir 20. júní.

Nýlegar fréttir af afkvæmum Tinds eru að við ungfolaskoðun sem fram fór fyrir stuttu í Skagafirði voru skoðaðir þrír folar undan Tind úr ræktuninni á Varmalæk, fengu þeir mjög góða umsögn sem efnileg stóðhestefni. Tindur verður fyrra gangmál hjá Hrossaræktarsambandi Vesturlands og seinna gangmál hjá Hrossaræktarsambandi Hrunamanna.