Nú hafa bæst inn tveir öflugir knapar á Ístöltið. Það eru þeir Sigurður Sigurðarson Íslandsmeistari og heimsmeistari í fjórgangi og Viðar Ingólfsson Íslandsmeistari í tölti. Það verður spennandi að sjá með hvaða hross þessir snillingar mæta. Kemur Viðar með Tuma? Hvaða svar hefur heimsmeistarinn við því?
Það fáum við að sjá á Laugardagskvöld í Skautahöllini.

Viðar Ingólfsson og Stemma frá Holtsmúla
Myndir/Örn Karlsson/frá Meistaradeild














