Um stöðu hesthúsmála hjá Gusti – hugleiðingar félagsmanns

Hér að neðan er pistill frá Óttari Kjartanssyni, Gustsfélaga, þar sem hann spyr stjórn hestamannafélagsins Gusts hvað sé að frétta af hesthúsmálum. Þessi pistill birtist einnig á vef Gustara. Hvað er að frétta? Ég undirritaður er einn þeirra sem eiga...

Hér að neðan er pistill frá Óttari Kjartanssyni, Gustsfélaga, þar sem hann spyr stjórn hestamannafélagsins Gusts hvað sé að frétta af hesthúsmálum. Þessi pistill birtist einnig á vef Gustara.

Hvað er að frétta?

Ég undirritaður er einn þeirra sem eiga (eða áttu) hlut í hesthúsi í Glaðheimum, félagssvæði Hestamanafélagsins Gusts í Kópavogi.

Líkt og flestir aðrir eigendur hesthúsa í Glaðheimum hef ég selt Kópavogsbæ hesthúseign mína og þá í trausti þess að við afhendingu eignarinnar muni ég geta flutt í nýtt hesthús sem byggt yrði á nýju svæði Gusts á Kjóavöllum. Um það segir í 6. lið kaupsamnings: “Verði lóðir ekki afhentar byggingarhæfar þann 1. apríl 2007 skal afhendingartími skv. 4. lið færast sem svarar til þeirrar seinkunnar sem verður á afhendingu byggingarréttar.”

Samvæmt nefndum 4. lið kaupsamningsins á ég að afhenda hús mitt 15. júní 2007, nema ef afhending byggingarhæfrar lóðar dregst. Nú er 1. apríl löngu liðinn og 15. júní mjög skammt undan en ekkert bólar á “byggingarhæfum” lóðum undir hesthús á Kjóavöllum og því síður húsunum sjálfum. Er nokkuð skrýtið þótt manni fari að verða órótt?

Þegar Kópavogsbær keypti hús okkar í júní 2006 ríkti bjartsýni meðal Gustara. Menn voru almennt sannfærðir um að að ári myndum við flytja í nýja byggð á Kjóavöllum. Sú von okkar hefur brugðist. Í allan vetur hafa Gustarar beðið fregna af gangi mála á Kjóavöllum. Ekkert fréttist. Stjórn félagsins hefur boðað til tveggja félagsfunda til að skýra gang mála. Ég verð að segja fyrir mitt leyti að eftir þá fundi hef ég verið litlu nær. Nú er orðið meira en tímabært að upplýsa menn um það hvort félag okkar og Glaðheimar muni “lifa af” næsta vetur.

Í ljósi stöðu mála beini ég eftirfarandi spurningum til stjórnar Hestamannafélagsins Gusts:

Er víst að við fáum að nýta óáreitt hús okkar í Glaðheimum næsta vetur, þar sem fyrir liggur að hús munu ekki standa fullbúin á Kjóavöllum okkur öllum til handa fyrr en í fyrsta lagi einhverntíma á árinu 2008?

Er tryggt að okkur verði gert mögulegt að stunda útreiðar úr Glaðheimum næsta vetur? Til að svo geti orðið er óhjákvæmilegt að tekið verði fyrir umferð vinnutækja á reiðvegum okkar og sama gildir um byggingaframkvæmdir á svæðinu.

Má treysta því að ekkert verði haggað við Glaðheimahverfinu, ekki hið minnsta, fyrr en öll hesthús þar hafa verið afhent kaupanda og allir Gustarar sem þess óska komnir í hús á nýju boðlegu svæði?

Hvenær gefst mönnum kostur á að kynna sér endanlegt fyrirkomulag húsa í hinni nýju hesthúsabyggð og hvenær gefst mönnum kostur á að skrifa sig fyrir tilteknu húsi við hæfi?
Verður húseigendum bætt fjárhagstjón sem af því leiðir að byggingu nýrra húsa seinkar um ár eða lengri tíma? Fyrir liggur að lóða- og byggingarkostnaður verður umtalsvert hærri en gert var ráð fyrir í júní 2006. Eiga Gustarar að bera einir það tjón sem af því hlýst?

Þessi óvissa eða ófremdarástand veldur mörgum Gustara andvöku. Ótaldir hafa yfirgefið fleyið og forðað sér annað – í hesthúsahverfi nágrannabyggðanna. Nauðsynlegt er að stjórn Gusts upplýsi félagsmenn sína um öll þessi mál hið bráðasta og með afgerandi hætti. Skýrist þessi mál ekki hið snarasta er félagsstarf okkar í uppnámi.

22. maí 2007
Óttar Kjartansson