Öll umfjöllun af hestamennsku og hestaíþróttum er af hinu góða og er það er lykilatriði fyrir hestamenn og hagsmunaaðila að hún sé sem mest í fjölmiðlum til að sýna almenningi hvað þetta er sterkt sport, heilsusamlegt og áhugavert. Það þarf ekki að leyna því að hestaíþróttir hafa þurft að víkja fyrir golfi, handbolta, körfubolta, fótbolta og öðrum íþróttagreinum í sjónvarpi sem er miður.
Hestafjölmiðlar, einstaklingar og hagsmunafélög í greininni hafa unnið ötult starf til margra ára hér á landi til að koma hestaíþróttum í sjónvarp og hefur RÚV sýnt einna mest frá hestaíþróttum en langt frá því að vera nægilegt fyrir þetta risavaxna sport sem hestamennskan er.
Það kom virkilega á óvart hvað íþróttafréttamenn á stærstu fjölmiðlum landsins hafa litla þekkingu á þessu sporti en í viðtali sem birtist í Eiðfaxa voru þeir Þorsteinn Gunnarsson íþróttafréttamaður á NFS og Adolf Ingi Erlingsson hjá RÚV spurðir af hverju umfjöllun um hestaíþróttir sé svo lítil í ljósvakamiðlum eins og raun ber vitni.
Harðar umræður spruttu upp eftir umrætt viðtal og var fjallað um það í helstu fjölmiðlun og síðan dó umræðan drottni sínum, sem er miður, því ummæli þessa einstaklinga settu kolsvartan blett á hestamenn og hestaíþróttina og svo fyrra þeir sig allri ábyrgð og skella skuldinni á frétta og blaðamenn og segja þá ekki starfi sínu vaxna, sem eiga að hafa slitið viðtölin úr samhengi og látið líta verr út en raun bar vitni.
Í greininni segir Þorsteinn Gunnarsson að hann skilji ekki alveg af hverju Landssamband Hestamanna sé yfir höfuð í röðum Íþróttasambands Íslands og Adolf Ingi Erlingsson sagði “Í hugum margra eru hestamenn yfirleitt rallhálfir, hangandi á bikkjunum sínum. Auðvitað eru þetta vissir fordómar en þannig er þetta nú samt. Þó að hestamennska sé með mikinn fjölda iðkenda þá er 99 prósent af þeim bara dundarar.” Og síðar í greininni segir hann “Knaparnir eru í flestum tilfellum hrossaprangarar á sama tíma og því eru ekki greinileg skil á milli íþróttamanna og sölumanna.”
Allir fyrra sig ábyrgð eins og segir í dægurlagatexta Bubba Mortens “ekki benda á mig” en þó kom yfirlýsinga frá Íþróttasviði RÚV þar sem Samúel Örn Erlingsson segir að skoðanir Adolfs Inga endurspegli alls ekki stefnu íþróttadeildar RÚV enda hafi þeir sýnt mest af hestatengdu efni af öllum fjölmiðlun landsins og ímynd hestamennskunnar sé ekki svona.
Telma Tómasson ritstjóri Eiðfaxa ver blaðamann sinn og segir ekkert óeðlilegt við vinnubrögð hans eins og kom fram í tilkynningu frá henni en þar segir:
“Ummæli Adolfs Inga Erlingssonar íþróttafréttamanns á Ríkisútvarpinu í nýjasta tölublaði Eiðfaxa hafa vakið upp hörð viðbrögð hestamanna og umræða hefur að sama skapi verið mikil – í flestum tilfellum málefnaleg. Að gefnu tilefni skal tekið fram að ekki var rangt haft eftir Adolf Inga eins og að hefur verið látið liggja. Blaðamaður Eiðfaxa hafði ítrekað samband við Adolf Inga eftir að viðtalið var tekið. Gerði Adolf Ingi ekki athugasemdir eða óskaði eftir að lesa viðtalið yfir og sýndi þar með traust sem hann bar til umrædds blaðamanns”
Landssamband Hestamanna hefur krafið Adolf Inga um afsökunarbeiðni vegna þessara ummæla hans og ekki er vitað hvort sú beiðni hafi borist LH. Jón Albert Sigurbjörnsson Formaður LH fór ekki mjúkum höndum um þá kollega í fréttum á NFS og sagði þá ekki hafa hundsvit á hestamennsku og hreinlega vissi ekki hvert eða hvað þeir væru að fara með þessum ummælum og tók það fram að LH væri þriðja stærsta (fjölmennasta) sérsamband innan ÍSÍ
Það sem er einna merkilegast við þetta allt saman er, að um íþróttafréttamenn er að ræða sem ekkert hafa sett sig inn í mál hestamanna og hestaíþróttir og fer annar þeirra á flug og lýsir hestamönnum eins og einhverjum niðursetningum og fyllibyttum. Eftirvill hefði verið réttara hjá þeim báðum að vísa á aðra til að koma fram í þessu viðtali, því jú allir hafa nú sitt sérsvið í íþróttum. Engin íþróttagrein á íslandi hefur fært okkur eins marga heimsmeistara og hestaíþróttir.
Það er gott að vera kominn aftur í hófapressuna þótt það sé á öðrum forsendum en hjá mínum gamla góða 847, þar sem maður var einn í öllu þar á bæ. Og svona í restina í mínum fyrsta pistli á nýjum stað þá tek ég það fram að ég starfa hjá World Wide – Iceland sem er eigandi vefsins www.Hestafréttir.is og kem ekki að daglegum rekstri hans og er hvorki hluthafi eða eigandi.
Lifið heil
Daníel Ben Þorgeirsson














