Ungir og efnilegir knapar

Alexandra Ýr Kolbeinsdóttir hefur náð frábærum árangri á keppnisbrautinni, hún byrjaði í hestunum einungis 5. ára gömul. Hún hóf sinn keppnisferil 7. ára þar sem hún náði góðum árangri á félagsmótum en svo lá leið hennar á Landsmót hestamanna árið...

Alexandra Ýr Kolbeinsdóttir hefur náð frábærum árangri á keppnisbrautinni, hún byrjaði í hestunum einungis 5. ára gömul. Hún hóf sinn keppnisferil 7. ára þar sem hún náði góðum árangri á félagsmótum en svo lá leið hennar á Landsmót hestamanna árið 2006 og 2008. Strax var markið sett hátt.

Alexandra hefur tvisvar verið valin íþróttamaður Sóta. Hún sigraði Bakkatöltið, firmakeppni, íþróttakeppni og gæðingakeppni Sóta á Lyftingu frá Skrúð.

Hvað ertu gömul/gamall? „Ég er 14 ára gömul.“

Hvenær byrjaðirðu í hestunum? „Ég var 5 ára þegar ég fékk bakteríuna.“
Hvers vegna byrjaðir þú í hestunum? „Því mamma mín og pabbi eru búin að vera í hestunum síðan ég var 3-4 ára.“

Hvað ertu að gera þessa dagana? ,,Bara í skóla og er að æfa fótbolta. Ég ríð mikið út og er á knapamerki 4 núna.”

Hvað ertu með mörg hross á járnum? ,,Ég er fimm hesta á járnum.”

Hvaða keppnisgrein er skemmtilegust og hvert er markmiðið? ,,Tölt og síðan fjórgangur næstur. Ég ætla að reyna að komast langt á landsmóti.”

Ertu að rækta hross? ,,Nei.”

Hver er aðalhesturinn þinn? ,, Lyfting frá Skrúð.”

Hver er fyrirmyndin þín í hestamennskunni? ,,Pabbi minn, Jóhann þór Kolbeins”

Ertu með nýjan keppnishest? ,,Já, Lyftingu frá Skrúð sem ég fékk í fermingargjöf í fyrra.”

Er keppni á milli ykkar systkynina? ,,Nei, bróðir minn er nú bara 3 ára. Segir Alexandra og brosir”

Hvaða hest myndirðu vilja keppa á ef þú mættir velja hvaða hest sem er ? ,,Ég myndi vilja keppa á Rökkva frá Hárlaugsstöðum, ekki spurning”

Hestafréttir þakka þessari ungu og efnilegu stúlku fyrir spjallið og óska henna góðs gengis á komandi arum.