Uppselt á frumsýningu

Hátt í eitt þúsund manns víðsvegar að úr heiminum hafa skráð sig á aðdáendasíðu heimildarmyndarinnar Kraftur – Síðasti spretturinn. Uppselt er á frumsýningu í kvöld kl: 19.00 en myndin fer í almenna sýningu á morgun. Myndin fjallar um stóðhestinn Kraft...

Hátt í eitt þúsund manns víðsvegar að úr heiminum hafa skráð sig á aðdáendasíðu heimildarmyndarinnar Kraftur – Síðasti spretturinn. Uppselt er á frumsýningu í kvöld kl: 19.00 en myndin fer í almenna sýningu á morgun.

Myndin fjallar um stóðhestinn Kraft frá Bringu og knapa hans Þórarinn Eymundson (Tóta), en þeir eru vel þekktir meðal aðdáenda íslenska hestins. Í raun fjallar Kraftur um hinn ósýnlilega þráð er liggur milli manns og hests. Varpað ljósi á einstakt samband manns og hest, sigurgöngu þeirra og söknuð þegar Tóti þarf að skilja við hestinn að lokinni keppnni á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi 2007. Einlæg og hrífandi mynd sem lætur engan ósnortinn, en um leið er hún óður til íslenska hestsins og íslenskrar náttúru.

Dagana 1.-7. október verður myndin sýnd á sama stað. Fólk er hvatt til að fara á myndina á þessum tíma því væntanlega verður þetta eina tækifærið til að sjá hana í fullum háskerpugæðum.

Slóðin á Facebook er : http://www.facebook.com/pages/KRAFTUR/145236223944?ref=ts