Upptökur frá forkeppni í barnaflokki – partur 1

Börnin eru með eindæmum vel ríðandi, það var mikil gleði að fylgjast með yngstu kynslóðinni. Börnin stóðu sig ótrúlega vel og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni. Glódís Rún Sigurðardóttir skaust í efsta sætið í barnaflokknum á Kamban...
Börnin eru með eindæmum vel ríðandi, það var mikil gleði að fylgjast með yngstu kynslóðinni. Börnin stóðu sig ótrúlega vel og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni. Glódís Rún Sigurðardóttir skaust í efsta sætið í barnaflokknum á Kamban frá Húsavík með 8,70, önnur Birta Ingadóttir Andvara á Frey frá Langholti II með 8,56 og þriðji Viktor Aron Adolfsson á Leik frá Miðhjáleigu með 8,54. Hér má sjá upptökur frá forkeppni í barnaflokki part 1.