Sunnudaginn 30 apríl fór fram lokaumferð í mótaröð barna unglinga og ungmenna í Ölfushöllinni. Mikil spenna ríkti á meðal keppenda enda vegleg verðlaun í boði. Sérstök verðlaun sem gefin voru af góðu fólki sem kosið hefur að láta ekki nafn síns getið voru veitt fyrir þrjá stigahæstu knapa í hverjum flokki og áður en keppni hófst í fimmgangi var ljóst að það voru nokkrir í hverjum flokki sem átti möguleika á að vinna til verðlauna.
Auk þess fékk stigahæsti knapi í hverjum flokki Blend bikarinn 2006 ásamt 15.000 kr. gjafabréfi frá Blend verslununum í Kringlunni og Smáranum en þar fást einmitt flottustu gallabuxurnar í bænum bæði fyrir stráka og stelpur.
Mótshaldarar senda styrktaraðilum kærar þakkir fyrir þeirra framlag.
Smali fór fram með þeim hætti að riðið var milli stika á frjálsri gangtegund knapa og sýndu þeir meðal annars fet brokk stökk og skeið með miklum tilþrifum sem vakti mikla kátínu meðal áhorfenda enda mikið hlegið.
Dagskránni lauk með grilli í blíðskapar veðri og gátu allir troðið í sig eins mörgum pylsum og hamborgurum og þeir vildu.
Úrslitin eftir þennan skemmtilega dag voru eftirfarandi:
Fimmgangur unglingar:
1. Ragnar Tómasson og Gefjun frá Króki 5,95
2. Teitur Árnason og Prinsessa frá Stóra-Hofi 5,52
3. Ragnar Bragi Sveinsson og Tralli frá Kjartansstöðum 5,36
4. Agnes Hekla Árnadóttir og Jódís frá Reykjavík 5,17 (vann B-úrslit)
5. Eva María Þorvarðardóttir og Máni frá Miðhjáleigu 5,12
6. Arnar Bjarki Sigurðarson og Kvika frá Krossi 4,98
Fimmgangur ungmenni:
1. Linda Rún Pétursdóttir 6,15
2. Bjarnleifur Bjarnleifsson og Vængur frá Köldukinn 5,45
3. Katla Gísladóttir og Brynja frá Skammbeinsstöðum 5,38
4. Sandra Steinþórsdóttir og Embla frá Oddgeirshólum 5,26
5. Margrét Freyja Sigurðardóttir 4,10
Samanlagðir sigurvegarar í barnaflokki:
1. Ragnheiður Hallgrímsdóttir 26 stig
2. Kristrún Steinþórsdóttir 15 stig
3. Steinunn Elva Jónsdóttir 13 stig
Samanlagðir sigurvegarar í unglingaflokki:
1. Ragnar Tómasson 20 stig
2. Teitur Árnason 18 stig
3. Oddur Ólafsson 13 stig
Samanlagðir sigurvegarar í ungmennaflokki:
1. Bjarnleifur Bjarnleifsson 21 stig
2. Margrét Freyja Sigurðardóttir 18 stig
3. Katla Gísladóttir 16 stig
Smali:
1. Kristbjörn Arna Albertsdóttir
2. Edda Hrund Hinriksdóttir
3. Teitur Árnason
















