Nú þegar er hafinn undirbúningur fyrir Meistaradeild VÍS 2008. Eins og flestum er eflaust í fersku minni sigraði Viðar Ingólfsson á þessu ári með glæsibrag eftir harða og æsipsennandi keppni þar sem úrslitin réðust á síðustu metrunum.
Ákveðið hefur verið að halda úrtöku fyrir Meistaradeild VÍS núna í ágúst eða nánar tiltekið þriðjudaginn 28. ágúst klukkan 16.00 í Ölfushöll. Efstu 14 knapar hafa þegar tryggt sér rétt til þátttöku og því verður keppt um minnst 10 laus sæti.
Úrtakan fer þannig fram að keppt verður í þremur greinum; fjórgangi, fimmgangi og flugskeiði í gegnum höllina. Stigahæstu knapar hljóta rétt til þátttöku í deildinni sem hefst í byrjun árs 2008.
Hægt er að skrá hross í úrtöku með því að senda póst á orn@barter.is og elka@simnet.is














