Úrtökumót fyrir Fjórðungsmót á Austurlandi fara fram í allmörgum aðildarfélögum að mótinu um næstu helgi, þar á meðal stærstu félögunum á Austurlandi: Freyfaxa, Hornfirðingi og Blæ á Norðfirði. Einnig fara héraðssýningar kynbótahrossa á svæðinu fram á næstu dögum: Þann 6. Og 7. Júní á Fljótsdalshéraði, 8. Júní á Hornafirði og 12. – 14 júní í Eyjafirði.
Spenna er nú að færast í undirbúning Fjórðungsmóts og knapar æfa hesta sína hver sem betur getur. Væntanlegir keppendur á FM07 eru farnir að kynna hestum sínum mótsvæðið á Iðavöllum og hefur undanfarna daga mátt sjá ýmsa efnilega kandidata taka nokkra hringi á vellinum. Ein þeirra er Linda Hrund Káradóttir, Freyfaxa, sem ætlar í úrtöku á hestinum Fálma frá Fremra-Hálsi, Stælssyni frá Miðkoti. Þeir sem voru fyrir tilviljun staddir í brekkunni spáðu vel fyrir þessu pari, enda fór það býsna vel eins og sjá má á myndinni.














