Mikið hefur verið rætt um skelfilega vanrækslu á 20 hestum í Åshammar í Svíþjóð en eigandi þeirra er Inge Johanson. Dýralæknir á staðnum segist aldrei hafa séð annað eins á sínum 25 ára ferli en málið er sérstaklega undarlegt þar sem regluhald varðandi hross í Svíþjóð er mun strangara en hér heima.
Hófar hrossana voru um helmingi stærri en eðlilegt má teljast og táin farin að vísa frá jörðu. Eins og gefur að skilja leiðir slíkt til mikils álags á sinar og fót og víst að hestarnir hafi liðið kvalir við að ganga. Hestarnir eru nú í umsjá lögreglunnar en ljóst er að það mun taka marga mánuði að koma heilsufari þeirra í eðlilegt horf.
Hrossin stóðu í stíum sínum í það miklum skít að þeir þurftu að lúta höfði svo þeir rækjust ekki með höfuðið í loftið. Hrossin voru einnig ekki með hestapassa, og þar að leiðandi verður erfitt að koma þeim í verð þegar þau hafa heilsu til. Öllum hestaeigendum í Svíþjóð er skilt að skrá sín hross og vera með slíkan passa en upp komst um málið m.a. vegna þess að Inge var kærður fyrir að hafa hrossin sín óskráð.
Lögreglan hefur óskað eftir fjárframlögum frá almenning til að standast kostnað að dýralæknum, járningamönnum og umhirðu á hrossunum en eigandi hrossanna Inge, verður krafinn um að greiða kostnað þegar málinu er lokið.
Þess má geta að Inge, var formaður Hestamannafélagsins Gydu, og barðist m.a. fyrir að fá keppnisvöll fyrir félagið meðan hrossin liðu þennan skort.
Hægt er að lesa um málið hér í Arbetarbladed.:
http://arbetarbladet.se/nyheter/sandviken/1.4049356-sa-har-levde-hastarna














