11.3.2010 16:28 Bein útsending í betri gæðum
 Hestafréttir og meistaradeild Vís varða með beinaútsendingu frá Gæðingafiminni í kvöld. Búið er að laga nettenginguna í Ingólfshöll, nettengingin hefur verið vandamálið. Búið er að setja upp aftur Emax tengingu og prufukeyra hana og lítur þetta bara vel út fyrir kvöldið. Þessi útsending verður frí til áhorfs. Lesa meira... |
11.3.2010 16:24 Svellkaldar konur 2010
 Ístöltsmót kvenna “Svellkaldar konur” 2010 verður haldið í Skautahöllinni í Laugardal laugardaginn 13.mars. Forkeppni hefst kl.17:00 en A-úrslit hefjast kl.22:10. Allar fremstu reiðkonur landsins mæta til leiks með gríðarlega sterka hesta.
Lesa meira... |
11.3.2010 14:44 Ferðasaga Limsverja
 Á laugardaginn síðast liðinn fór Hrossaræktardeild Fáks og Limsfélagið í sameiginlega vísinda- og skemmtiferð um Suðurland og að sjálfsögðu var sá mikli garpur Limur frá Leiðólfsstöðum tekinn út og skoðaður. Byrjað var að vísitera hjá því heiðursfólki Olil og Bergi á Syðri-Gegnishólum. Gaman var að sjá hvað þau eru vel hestuð, nánast öll hrossin úr þeirra eigin ræktun og fékk hópurinn flotta kynningu á hverjum einasta hesti í báðum hesthúsunum. Lesa meira... |
11.3.2010 14:39 Gott mót í Skagfirsku mótaröðinni
 Í gærkvöld fór fram tölt í skagfirsku mótaröðinni og var það gott og vel hepnað mót. Skráningar voru góðar og hart var barist í öllum flokkum. Mjög góðir hestar og reiðmennska sást í öllum flokkum. Gamalkunnir keppnishestar áttu gott kombakk og ungir og efnilegir hestar gerðu líka vel. Næst verður keppt í fjórgangi þann 24. mars.
Lesa meira... |
11.3.2010 14:34 Æskan & hesturinn í Kastljósinu í kvöld
 Stórsýningin Æskan & hesturinn 2010 verður um helgina í Reiðhöllinni í Víðidal. Eins og venja er, verða tvær sýningar hvorn daginn, kl. 13 og kl. 16. Frítt er inn meðan húsrúm leyfir. Í kvöld, fimmtudagskvöld, verður generalprufa fyrir sýninguna og ætlar Kastljósið að vera í beinni útsendingu frá Reiðhöllinni. Lesa meira... |
11.3.2010 10:52 Ráslistar á Svellkaldar 2010
 Nú hefur verið dregið um rásröð á Svellköldum 2010 og birtist hún hér að neðan. Dagskrá mótsins verður kynnt fyrir helgi, en mótið hefst kl. 17 á laugardaginn með forkeppni í flokknum Minna vanar.
Lesa meira... |
11.3.2010 10:51 Húnvetnska liðakeppnin - fimmgangur og tölt unglinga ráslistar
Hér koma ráslistar fyrir fimmgang og tölt unglinga í Húnvetnsku liðakeppninni, það verða tveir inn á í einu og er prógrammið, tölt, brokk, stökk, fet og skeið í fimmgangi (skeiðið eru tveir sprettir fjær áhorfendum og einn í einu). Í tölti verður ekki snúið við og er prógrammið hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt.
Lesa meira... |
11.3.2010 10:47 Reiðhöllin Faxaborg vígð
Síðastliðinn sunnudag var reiðhöllin í Borgarnesi formlega tekin í notkun og henni gefið nafnið Faxaborg. Gestir voru fjölmargir en áætlað er að vel á fjórða hundrað manns hafi komið í höllina. Ingi Tryggvason setti hátíðina og stjórnaði henni. Sr.. Þorbjörn Hlynur Árnason flutti húsblessun og Kristján Gíslason fór yfir byggingarsöguna. Lesa meira... |
10.3.2010 17:47 Vetrarleikar FSU
 Vetrarleikar FSU voru haldnir miðvikudaginn 3. Mars á Brávöllum af nemendum á hestabraut FSU. Það voru aðallega nemendur á hestabrautin sem tóku þátt, en var mótið opið öllum nemendum FSU. Hestamannafélagið Sleipnir lánaði nemendum völlinn og hljóðkerfi, Baldvin og þorvaldur gaf ábreiðu fyrir bestau reiðmennskuna sem Brynhildur Sighvatsdóttir hlaut. Arnar Bjarki Sigurðarson vann farands bikarinn i annað sinn á Kraftsyninum Sprett frá Akureyri. Lesa meira... |
10.3.2010 17:02 Peningaverðlaun á opnu Barkamóti 2010
skráning á þriðjudag
 Nú styttist í hið geysivinsæla Barkamót, sem haldið verður í Reiðhöllinni í Víðidal, laugardagurinn 20. mars. kráning fer fram þriðjudaginn 16. mars kl. 20:00 – 21:00 í Reiðhöllinni. Einnig er hægt að skrá í síma 567-0100, 898-2018, 893-3559, 691-1115 gegn því að gefa upp kortanúmer fyrir skráningargjöldunum. Lesa meira... |
10.3.2010 17:00 Vetrarleikar í Gusti í kvöld
 Annað mótið í mótaröð Keiluhallarinnar og Gusts mun fara fram í reiðhöllinni í Glaðheimum í kvöld kl. 18:30. Mótinu var frestað sl. laugardag vegna veðurs og vallaraðstæðna og þar sem fjöldi viðburða um helgina kemur í veg fyrir að hægt sé að hafa mótið þá, hefur því verið komið á dagskrá í kvöld. Skráning fer fram í Helgukoti á milli kl. 17:30 og 18:00.
Lesa meira... |
10.3.2010 16:57 Gæðingafimi annað kvöld
 Næsta keppnisgrein í Meistaradeild VÍS er gæðingafimi. Keppnin verður á morgun fimmtudag í Ölfushöllinni og hefst keppni klukkan 19:30. Gæðingafimin er mikil áskorun fyrir knapana. Þar eru allir þættir dæmdir sérstaklega og síðan heildarútlit sýningarinnar. Lesa meira... |
10.3.2010 08:29 Sölusýningu Hestafrétta og Hest.is
 Síðasti skráningardagur á Sölusýningu Hestafrétta og Hest.is sem haldin verður í Ölfushöllinni, næstkomandi föstudagskvöld kl. 19.30 Sýningin verður með svipuðu sniði og áður hefur verið, fólk sendir tölvupóst á netfangið elka@simnet.is, fær skráningarform sem það fyllir út og sendir til baka í síðasta lagi á hádegi á miðvikudag, 10. Mars. Lesa meira... |
10.3.2010 02:47 Áskorendamót Riddara Norðursins
 Áskorendamót Riddara Norðursins fer fram 13. mars næstkomandi í reiðhöllinni Svaðastaðir. Leikar hefjast kl 20:00 og miðinn inn kostar 1000 kr. 5 öflug lið mæta til leiks og verður hart barist þeirra á milli.
Lesa meira... |
10.3.2010 02:42 Annað vetramót Sleipnis
 Ákveðið hefur verið að halda annað vetramót Sleipnis í Rangárhöllinni föstudagskvöldið 12. mars klukkan 20:00. Skráning verður á staðnum og hefst hún klukkutíma fyrr. Keppt verður í eftirfarandi flokkum: barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, áhugamanna flokki og opnum flokki. Lesa meira... |
9.3.2010 21:27 Stofnunfudur hagsmunafélags hestamanna
Miðvikudagskvöldið 10.mars kl 20 ætla hestamenn og hestaáhugamenn stofna með sér félagsskap, í Fólkvangi á Kjalarnesi, til að vinna að hagsmunamálum hestamanna á Kjalarnesi. Markmið þessa félags verður að vinna að hagsmunum hestamennskunnar á Kjalarnesi, m.a. með því að stuðla að reiðvegagerð, uppbyggingu hesthúsahverfis og útvega aðgengilega sumarbeit.
Lesa meira... |
9.3.2010 16:54 Húnvetnska liðakeppnin
Næsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar er fimmgangur og tölt unglinga og verður í Þytsheimum föstudagskvöldið 12. mars nk. Lokaskráningardagur er í dag, þriðjudaginn 9. mars. Skráning er hjá Kollu á mailið: kolbruni@simnet.is. Lesa meira... |
9.3.2010 15:45 Reiðhöll Sleipnis
 Fundur vegna sjálfboðavinnu við smíði á reiðhöll Sleipnis fer fram í Hliðskjálf fimmtudaginn 11. mars kl 17:00. Farið verður yfir verkáætlun og skipulag sjálboðavinnunnar.
Lesa meira... |
9.3.2010 13:31 Hresst upp á minni Haraldar Þórarinssonar
– opið bréf
Sæll Haraldur! Vegna svars þíns við fréttatilkynningu frá Geysi, Léttfeta, Sindra og Stíganda, sé ég mig knúna til þess að leiðrétta nokkrar staðreyndir. Í fyrsta lagi þá tilkynnti ég starfsmanni L.H. að morgni 4. mars að erindið væri vegna Landsmóts 2012. Lesa meira... |
9.3.2010 13:25 Opið töltmót í Faxaborg
KB mótaröðin
 Liðakeppni (lágmark 3 í liði – opin keppni). Einstaklingskeppni (opin keppni) Barna-, unglinga-, ungmenna-, 1.flokkur, 2.flokkur (minna keppnisvanir) 13.mars. Tölt hvert lið þarf að hafa sitt sérkenni !! Sérstök heiðursverðlaun eru veitt því liði sem þykir hafa sýnt skemmtilegustu liðsheildina. Öll mótin hefjast kl.12:00.
Lesa meira... |
9.3.2010 13:20 Æskan og hesturinn
 Nú líður senn að sýningunni Æskan og hesturinn en hún verður haldin um helgina, 13. og 14.mars. n.k. Sýningarnar eru fjórar – tvær hvorn daginn – kl. 13 og 16. Skráning í Grímureiðina (miðað við 9 ára og yngri) er á netfanginu fakurbogu@simnet.is (svara þessum pósti).
Lesa meira... |
9.3.2010 09:12 Framhaldsskólamótið í hestaíþróttum 27.mars
 Framhaldskólamótið í hestaíþróttum verður haldið í Mosfellsbæ þann 27.mars næstkomandi. Síðustu ár hafa um 18 skólar tekið þátt. Í ár verður keppt í 4 greinum, Fjórgangi, fimmgangi, tölti og skeiði. Í skeiði er frjáls skráning og fer hún fram á mótsstað. Í hinum greinunum mega þrír keppendur keppa frá hverjum skóla. Skólar þurfa að skila inn skráningum fyrir 17.mars í síðasta lagi.
Lesa meira... |
8.3.2010 17:09 Vegna fréttatilkynningar frá Stíganda,Léttfeta, Geysi og Sindra
Svarbréf frá Haraldi Þórarinssonar formanni LH.
 Að morgni fimmtudagsins 4. mars hafði formaður Stíganda í Skagafirði samband við skrifstofu LH og bað um fund með stjórn LH fyrir félögin í Skagafirði. Ekki var greint frá fundarefni. Í framhaldi hafði skrifstofa LH samband við undirritaðan til að kanna hvort ég gæti hitt formenn hestamannafélagana í Skagafirði föstudaginn 5. mars, kl. 15:30. Lesa meira... |
8.3.2010 17:06 Karlareið á Svínavatni
 Næstkomandi laugardag verður karlareið á Svínavatni. Farið verður af stað kl. 14.00. Safnast verður saman norðan við Svínavatn og riðið úr "Bótinni" og haldið suður vatnið að Stekkjardal undir traustri fararstjórn. Alls eru þetta c.a 8 km. Að ferð lokinni verður grillað í Reiðhöllinni Arnargerði við Blönduós. Lesa meira... |
8.3.2010 17:04 Framhaldskólamótið í hestaíþróttum 27.mars
 Vinsamlegast komið þessu áleiðis til einhvers hestaáhugamanns og íþróttanefndar í skólanum eins fljótt og mögulegt er. Framhaldskólamótið í hestaíþróttum verður haldið í Mosfellsbæ þann 27.mars næstkomandi. Síðustu ár hafa um 18 skólar tekið þátt. Í ár verður keppt í 4 greinum, Fjórgang, fimmgang, tölti og skeiði. Lesa meira... |
8.3.2010 12:44 Svellkaldar á laugardaginn
 Ístöltsmót kvenna, "Svellkaldar konur" fer fram í Skautahöllinni í Laugardal á laugardaginn kemur 13. mars og hefst mótið kl. 17. Alger sprengja varð í skráningu á mótið og stefnir í hörkukeppni í öllum flokkum. Sigurvegari opna flokksins í fyrra, Lena Zielinski mun freista þess að verja titil sinn, en fær án efa hörkukeppni því flestar bestu reiðkonur landsins eru skráðar til leiks. Lesa meira... |
8.3.2010 10:27 Minnum á Töltmót Loga Trausta og Smára
Mótið verður haldið í Reiðhöllinni á Flúðum 13 mars n.k og hefst kl 14. Keppt verður í barna, unglinga ungmenna og fullorðinsflokki. Ekkert skráningargjald í barnaflokki. Fyrir unglinga og ungmenni 1,500 kr hver skráning. Fyrir fullorðinsflokk 2.000 hver skráning. Lesa meira... |
8.3.2010 10:25 Tvö samræmingarnámskeið á undanförnum dögum
HÍDÍ
 HÍDÍ hefur haldið tvö samræmingarnámskeið á undanförnum dögum. Ýmsar breytingar voru kynntar dómurum um áherslur í dómstörfum og túlkunaratriði á reglum sem notaðar hafa verið. Dómurum finnst áríðandi að þessar ábendingar skili sér til allra keppenda. Lesa meira... |
8.3.2010 10:05 Reiðhöllin í Borgarnesi var vígð formlega sunnudaginn 7. mars
 Reiðhöllin í Borgarnesi var vígð formlega sunnudaginn 7. mars og hlaut hún nafnið Faxaborg. Mikið var um dýrðir - talað orð og stórgóðar sýningar. Gestir voru fjölmargir og er ætlað að vel á fjórða hundrað manns hafi komið í húsið. Ingi Tryggvason setti hátíðina og stjórnaði henni. Lesa meira... |
8.3.2010 09:55 Ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
 Árleg Ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður haldin í Ölfushöllinni laugardaginn 27.mars n.k.. starfandi kynbótadómarar munu taka út folana bæði fyrir sköpulag og gangeiginleika. Rétt til þátttöku hafa folar 2.vetra (fæddir 2008) og 3.vetra (fæddir 2007) Sköpulag folana verður skoðað kl.15:00 að deginum en þeir verða reknir til í höllinni kl.20:00 þar sem að ganglag og hreyfieðli þeirra verður metið.
Lesa meira... |
8.3.2010 09:53 Enn vantar okkur nokkra frábæra töltara Stjörnutölt
 Eins og allir vita er undirbúningur fyrir Stjörnutölt í fullum gangi. Enn vantar okkur nokkra frábæra töltara til að vera með í sýningunni. Lumar þú á slíkum hesti? Ef svo er verður forskoðun í Top Reiter höllinni, þriðjudaginn 9. mars frá kl. 19:00 – 20:30. Ekki þarf að ská á þessa forskoðun né greiða fyrir hana, bara að mæta á svæðið. Stjörnutöltsnefnd 2010
|
7.3.2010 13:57 Mývatn open 2010
 Um næstu helgi 12.-13. mars verður haldið árlegt ísmót á Mývatni. Á föstudaginn verður hópreið um Mývatn og kl 18 gefst keppendum kostur á að skoða brautina og æfa sig. Keppni hefst kl 10:30 á laugardaginn og má búast við skemmtilegri keppni í sérlega fallegu umhverfi.
Lesa meira... |
7.3.2010 13:54 Úrslit á Ís-landsmóti
 Það var samhljóða ákvörðun mótsnefndar að halda Ís-Landsmótið í dag, þrátt fyrir slæmt veður á mótsstað, og í raun um mest allt land. Engu að síður voru margir keppendur mættir á svæðið, sumir um mjög langan veg og það hefði verið í fyllsta máta ósanngjarnt gagnvart þeim að fresta mótinu, eða fella það niður, enda er það svo að aldrei yrði hægt að finna nýjan tíma sem hentaði öllum.
Lesa meira... |
6.3.2010 19:58 Reisugil hjá Hestamannafélaginu Blæ
 Í dag, laugardaginn 6.mars hélt Hestamannafélagið Blær reisugilli í tilefni af nýrri reiðhöll félagsins er fengið hefur nafnið "Dalahöllin".Dalahöllin er staðsett á Kirkjubólseyrum í Norðfirði. Var bæjarbúum og styrktaraðilum boðið og var boðið upp á léttar veitingar. Lesa meira... |
6.3.2010 18:14 Fréttatilkynning frá hestamannafélögunum
Geysi, Léttfeta, Sindra og Stíganda varðandi Landsmót hestamanna 2012
 Fulltrúar ofan talinna hestamannafélaga áttu pantaðan fund með Haraldi Þórarinssyni formanni Landssambands hestamannafélaga (LH) í gjær, 5. mars kl: 15:30. Þar átti að afhenda honum skjöl undirrituð af stjórnarmönnum 26 hestamannafélaga innan LH þar sem því er mótmælt hvernig staðið er að ákvörðun um að halda Landsmót 2012 í Reykjavík. Lesa meira... |
6.3.2010 13:49 Hrossaræktarfélag Hraungerðishrepps
Folaldasýning Hrossaræktarfélags Hraungerðishrepps
 Sunnudaginn 21.febrúar sl. var haldin glæsileg folaldasýning Hrossaræktarfélags Hraungerðishrepps tókst vel að viðstöddum fjölda áhorfenda. 25 folöld tóku þátt. Dómari var Steindór Guðmundsson stórbóndi á Hólum og fórst honum það verk vel úr hendi, þulur var Ágúst Guðjónsson. Glæsileg verðlaun voru í boði fyrir vinsælasta folaldið og efsta sætið. Lesa meira... |
6.3.2010 10:47 Hestanálgun í Rangárhöll
 Sunnudaginn 7. mars nk. kl. 13 verður boðið upp á nýstárlegan og mjög svo áhugaverðan viðburð í Rangárhöllinni á Hellu. Um er að ræða samsetta kennslusýningu undir nafninu „Hestanálgun“ þar sem að koma nokkrir kennarar og sýnendur og fjallað verður um allt ferlið. Lesa meira... |
5.3.2010 17:00 Vetrarleikar í Gusti
 Aðrir vetrarleikar ársins í Gusti í mótaröð Keiluhallarinnar munu fara fram á laugardaginn kemur, 6. mars nk. kl. 13. Boðið verður upp á keppni í öllum hefðbundnum flokkum ef þátttaka er næg:
! Lesa meira... |
5.3.2010 15:55 Hesthúsbygginar - Hross í hollri vist!
 Endurmenntun LbhÍ stendur fyrir námskeiði laugardaginn 13. mars um hesthúsbygginar - Hross í hollri vist! Hvetjum alla sem standa í slíku, nýbyggingum eða lagfæringum, að skrá sig sem fyrst. Einnig hvetjum við ykkur til að miðla upplýsngum um þetta námskeið til áhugasamra hestamanna. Lesa meira... |
5.3.2010 14:14 Hrossaræktarfundir
 Í næstu viku verða haldnir eftirtaldir fundir um málefni hrossaræktarinnar. Fundirnir hefjast kl. 20:30. Mánudaginn 8. mars. Félagsheimili Fáks, Reykajvík. Þriðjudaginn 9. mars. Hvanneyri, Borgarfirði. Miðvikudaginn 10. mars. Félagsheimili Sleipnis, Selfossi.
Lesa meira... |
5.3.2010 14:12 Landsmóts 2012.
Í dag, föstudaginn 5.mars, kl.14:00 í Reiðhöll Fáks í Víðidal mun stjórn Landssambands hestamannafélaga skrifa undir samstarfssamning við Hestamannafélagið Fák vegna Landsmóts 2012.
Lesa meira... |
5.3.2010 13:59 Happadrætti Landsmóts: Ert þú ein/-n af þeim heppnu?
 Fjöldi vinninga var dreginn í happadrætti Landsmóts og samstarfsaðila í verslun Líflands sl. þriðjudag. Í pottinnum lentu allir þeir sem keypt hafa miða í febrúar. Dregið er í lok hvers mánaðar eða alls þrisvar sinnum eða þar til forsölu lýkur þ. 1. maí nk. Skoða HÉR happadrættisvinninga febrúarmánaðar!
Lesa meira... |
5.3.2010 13:57 Minnum á sýnikennslu Viðars Ingólfssonar og Þorvalds Árna
Minnum á sýnikennslu Viðars Ingólfssonar og Þorvalds Árna í reiðhöllinni í Víðidal í kvöld Sýnikennsla tveggja meistara í Reiðhöllinni í Víðidal. Viðar Ingólfsson og Þorvaldur Árni Þorvaldsson verða með sýnikennslu föstudaginn þann 5. mars frá kl. 20:30 til 22:00. Farið verður yfir helstu atriði er varða þjálfun og uppbyggingu keppnishesta með áherslu á tölt.
Lesa meira... |
5.3.2010 13:52 Minnum á fræðslukvöldið með Rúnu í kvöld!
 Félag tamningamanna, í samstarfi við Félag hrossabænda, stendur fyrir fræðslukvöldi í félagsheimili Skugga í Borgarnesi í kvöld, 5. mars kl. 19. Þar mun hinn heimsþekkti knapi og þjálfari Rúna Einarsdóttir - Zingsheim, sem búsett er í Þýskalandi, flytja fyrirlestur um þjálfun hrossa, m.a. með tilliti til mismunandi áherslna á milli Íslands og meginlands Evrópu, Lesa meira... |
|