Smölun á rúmlega fimm hundruð hrossum hófst klukkan tíu í gærmorgun og hófust Laufskálaréttirnar sjálfar svo um eittleytið í gær. Búist var við að hátt á annað þúsund manns fylgist með réttunum sem eru vinsæll árlegur viðburður í Skagafirðinum.
Veður lék hins vegar ekki við mannskapinn og hefur það eflaust sett strik í reikninginn. Eins og fram kemur á vefnum Feyki mættu þó margir og voru með brjóstbirtuna uppi við. Hún yljaði mönnum sem aldrei fyrr.
/visir.is







