Félag tamningamanna er aðili að Hestatorginu svokallaða og verður torgið sett upp á HM í Hollandi í næsta mánuði. Aðilar að torginu í ár eru auk FT, Félag hrossabænda, Landssamband hestamannafélaga, Landsmót ehf., Sögusetur íslenska hestsins, Háskólinn á Hólum og Worldfengur. Þetta kemur fram á vefsíðu félags tamningamanna.
Aðilar þessir munu sameinast um 130 fm tjald á markaðssvæði mótsins. Þar verður starfsemi allra þessara aðila kynnt og boðið upp á ýmsar uppákomur. Hestatorgið var fyrst sett upp á Landsmótinu á Vindheimamelum í fyrra og tókst mjög vel.
Markmiðið með uppsetningu Hestatorgsins á HM er að kynna þá miklu og víðfeðmu starfsemi sem fer fram innan hestageirans á Íslandi.














