Hér á landi eru starfræktir tveir landbúnaðarháskólar Háskólinn á Hólum, Hólaskóli og Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri. Í Hólaskóla hefur mikil áhersla verið lögð á hestamennsku og reiðmennsku ásamt fiskeldi og ferðamálum. Eftir nám á háskólastigi í eitt ár er nú hægt að útskrifast sem hestafræðingur. Eftir tvö ár sem tamingamaður og eftir þrjú ár sem reiðkennari.
Enga sérstaka eðlisbreytingu er að sjá á námsefni því sem nemendur þar kljást við, heldur aðeins aðdraganda námsins og að titillinn hestfræðingur er tekinn til brúkunar. Nú þurfa nemendur sem vilja komast inn í skólann að hafa lokið stúdentsprófi. Félag Tamningamanna gerir einnig þær kröfur að félagar þess hafi lokið námi frá skólanum. Þannig hefur fagfélag bundið sig við einn ákveðinn skóla og þær kröfur sem hann gerir. Fagfélag sem hefur innanborðs einungis nokkra félaga sem hafa yfirhöfuð lokið stúdentsprófi eða námi frá Hólaskóla. Á heimasíðu Hólaskóla segir: “Lýsing á fyrirkomulagi náms, prófum og prófreglum til þessara prófgráða eru settar fram í sérstökum reglugerðum skólans og FT.”
Nú ber svo undir að áhugi og kunnátta á hestamennsku verður ekki til í gegnum framhaldsskóla og í námi til stúdentsprófs. Heldur í gegnum áhuga og reynslu ungmenna af ástundun hestamennsku. Það nám sem áður mátti skilgreina sem verk- og bóknám á framhaldsskólastigi hefur verið fært yfir á háskólastig.
Að mörgu leyti má líkja starfi tamingamanns við starfi iðnsveina, það er verklegt að mestu. Það krefst kunnáttu, hæfileika, áhuga, dugnaðar, atorku og íþróttamennsku. Náttúrulegir hæfileikar reiðkvenna og reiðmanna verða alltaf hluti af starfinu.
Að þessu sögðu er hægt að færa að því rök að sá gjörningur að færa menntun tamningamanna yfir á háskólastig, jafngildi því að iðnmenntun húsasmiða færðist til Háskóla Íslands. Húsasmiðir nefndust þá ekki lengur húsasmiðir, heldur húsfræðingar. Iðnnám velja margir þeir sem hafa ekki sterkar kenndir eða hæfileika til bóknáms og er því krafa um stúdentspróf engin fyrirstaða og geta iðnnemendur strax snúið sér að kjarna málsins og hafið verknám samhliða eins veigalitlu bóknámi og hægt er. Krafa um stúdentspróf til þeirra sem hafa áhuga á að gerast iðnsveinar myndi snarfækka nemendum, og jafnvel draga að öðruvísi nemendur sem hafa minni hæfileika til verklegrar atvinnu.
Þetta er nú skeð í námi tamingamanna á Hólum, á næsta ári hefur þar enginn nám án þess að vera stúdent. Þetta kemur í veg fyrir að náttúrutalentar sæki þar nám, og annað hvort munu þeir flosna upp úr greininni eða starfa þar réttindalausir og kunnáttuminni en ella. Það er synd að horfa upp á ákvörðunartökur sem skerða möguleika íslenskra ungmenna til réttindanáms í íslensku menntakerfi.
Leiðari Austurglugganns














