Vetrarmót Hestamannafélagsins Grana

Nú er komið að 2. vetrarmóti Hestamannafélagsins Grana á Hvanneyri. Haldið verður opið töltmót þann 25. febrúar næstkomandi að Mið-fossum í Borgarfirði. Mótið hefst kl. 18.00.Keppt verður í 1. flokki, 2. flokki og Bjórtölti (eða Kóktölti fyrir börn). Skráning á...

Nú er komið að 2. vetrarmóti Hestamannafélagsins Grana á Hvanneyri. Haldið verður opið töltmót þann 25. febrúar næstkomandi að Mið-fossum í Borgarfirði. Mótið hefst kl. 18.00.
Keppt verður í 1. flokki, 2. flokki og Bjórtölti (eða Kóktölti fyrir börn).
Skráning á mótið þarf að berast fyrir klukkan 21.00 á miðvikudagskvöldið 24. febrúar. Tekið verður við þeim á grani@lbhi.is.
Koma þarf fram:
Nafn knapa.
Nafn hests.
Aldur.
Litur.
Hönd sem riðið er uppá.
Flokkur sem keppt er í.

Skráningargjöld borgast á staðnum í reiðufé.

Frítt er inn fyrir áhorfendur og sjoppa á staðnum :)

Kveðja,
Stjórn Grana.