Vonarstjarna fyrir bí

„Þetta var helv… skaði, að missa svona trippi. En svona er þetta bara, þeir missa sem eiga,“ segir Ómar Antonsson, hrossaræktandi á Horni í Hornafirði, en hann varð fyrir því áfalli að Klöpp frá Horni, fífilbleik 4 vetra hryssa undan...

„Þetta var helv… skaði, að missa svona trippi. En svona er þetta bara, þeir missa sem eiga,“ segir Ómar Antonsson, hrossaræktandi á Horni í Hornafirði, en hann varð fyrir því áfalli að Klöpp frá Horni, fífilbleik 4 vetra hryssa undan Orra frá Þúfu og Skör frá Eyrarbakka, fótbrotnaði og varð að aflífa hana.

„Klöpp var úti á túni með þremur öðrum unghryssum, hafði verið hleypt út til að njóta frelsisins og bragða á nálinni. En það fór nú svona, hún var slegin ofarlega á framfót og ekkert annað að gera en aflífa hana. Þetta var stórt og föngulegt trippi, háfætt og léttbyggð. Ég hef aldrei heyrt Daníel spá jafnvel fyrir nokkru öðru trippi, hvorki í minni eigu né annarra. En Skör fer aftur undir Orra í sumar, það er sárabót,“ segir Ómar.

Daníel Jónsson, tamningamaður í Pulu, tamdi Klöpp í vetur. Hann talar engu tæpitungu þegar hann er spurður um trippið. „Þetta var snillingur, eitt alefnilegasta trippi sem ég hef tamið, það er bara eitt orð yfir það. Gangtegundir, vilji og geðslag alveg meiri háttar. Þetta var alveg hrikalegt. Hún kemur ekki á fjórðungsmót úr þessu, en ég get alveg lofað þér því að hún hefði fengið 8,50 fyrir hæfileika þessi meri, ekki minna, það er alveg á hreinu,“ segir Daníel Jónsson.

Rétt er að minna á að Skör frá Eyrarbakka varð efsti í A flokki gæðinga á Fjórðungsmóti Austurlands á Iðavöllum 1999. Knapi var Daníel Jónsson.

Frétt Jens Einarsson