WorldFengur – ný og öflugri útgáfa

Þriðjudaginn 26. júní var hleypt af stokkunum nýrri útgáfu af WorldFeng, upprunaættbók íslenska hestsins www.worldfengur.com. Nýjasta útgáfa þróunarverkfærisins 10g JDeveloper frá Oracle, sem WorldFengur er þróaður í, býður upp á margfalt meiri möguleika í þróun og útliti sem mun sjá...

Þriðjudaginn 26. júní var hleypt af stokkunum nýrri útgáfu af WorldFeng, upprunaættbók íslenska hestsins www.worldfengur.com. Nýjasta útgáfa þróunarverkfærisins 10g JDeveloper frá Oracle, sem WorldFengur er þróaður í, býður upp á margfalt meiri möguleika í þróun og útliti sem mun sjá sér stað í nýju útgáfunni.

Jafnframt er nýja útgáfan mun hraðvirkari m.a. vegna þess að WorldFengur verður keyrður á öflugum Oracle Application miðlara hjá Skýrr hf. Notendur sjá einnig mikinn mun á útliti kerfsins og möguleikum til að raða listum eftir óskum hvers og eins. Þessi nýja útgáfa á að ráða betur við allan þann fjölda áskrifenda að WorldFeng sem bæst hafa við á síðustu mánuðum og munu halda áfram að bætast við á næstu mánuðum vegna samninga við stærstu aðildarlönd FEIF um frían aðgang allra félagsmanna þeirra að WorldFeng.