WorldRanking – Íþróttamót Sörla 2008 verður haldið 17. – 18. maí. Keppt verður í öllum flokkum og öllum greinum. Skráning er í dómpallinum á Sörlastöðum þriðjudaginn 13. maí milli klukkan 19 og 21. Skráningargjald er 2500 krónur en 1000 krónur fyrir polla.
• Öll hross verða að vera grunnskráð
• WorldRanking er einungis fyrir ungmennaflokk og eldri.
• Nýtt: Fimmgangur unglingar og ungmenni
• Mótanefnd áskilur sér þann rétt að fella niður grein ef ekki næst nægilega þátttaka.
Mótanefnd Sörla














