Endurmenntun LbhÍ hefur frá haustinu 2008 boðið uppá tveggja ára námskeiðsröð fyrir áhugafólk um reiðmennsku og almennt hestahald. Námið er keyrt á fjórum verklegum helgum á önn með símati en að auki er bóklegt efni tekið bæði í lotukennslu eina helgi og í fjarnámi með verkefnum og prófi. Þessi uppbygging hentar því vel fólki með vinnu.
Námið er líka metið til framhaldsskólaeininga og er því kjörið fyrir nema á því stigi sem vilja nýta einingarnar sem valeiningar og þannig samhliða sinnt áhugamáli sínu og hæfileikasviði. Mikil áhersla er lögð á vandaða verklega vinnu þar sem unnið er með og út frá hestinum. Nauðsynlegt er því að hafa hest á húsi og geta sinn heimavinnunni vel milli verklegra helgi til að ná framförum. Bóklegi hlutinn kemur svo samhliða inná almennt hestahald, s.s. fóðrun, húsvist, heilsufar, o.fl.
Á vormánuðum útskrifuðust 23 nemar frá námshópum í Rangárhöllinni við Hellu og Hestamiðstöðinni Dal í Dallandi. Að ári munu væntanlega útskrifast námshópar sem hafa nú lokið sínu fyrsta ári á Flúðum, Sörlastöðum í Hafnarfirði, í Faxaborg við Borgarnes, Top Reiterhöllinni á Akureyri og frá Iðavöllum á Fljótsdalshéraði. Um 90 mann hafa verið í náminu í vetur. Nú á haustmánuðum er áætlað að bjóða námið fram á þremur stöðum; á Hvammstanga, í Rangárhöllinni við Hellu og í nálægð við höfuðborgarsvæðið. Allar upplýsingar um námið, hestakost og fyrirkomulag má finna á heimasíðu skólans www.lbhi.is/namskeid undir Reiðmaðurinn. Umsóknarfrestur er til 4. júní og má finna umsóknareyðublöð á heimasíðunni.
Fjölmargir kennarar koma að kennslu Reiðmannsins, en að faglegri uppbyggingu námsins koma, m.a. Reynir Aðalsteinsson og Þorvaldur Kristjánsson. Aðalkennari við verklega kennslu á Hvammstanga verður Þórir Ísólfsson reiðkennari á Lækjamóti, á Hellu verður það Ísleifur Jónassons reiðkennari í Kálfholti og með þriðja hópinn verður Anna Sigríður Valdimarsdóttir keppnisknapi. Að væntanlegum útskriftarhópum koma auk fyrrnefndra Erlingur Ingvarson, Reynir Örn Pálmason og Heimir Gunnarsson reiðkennarar. Umsjón með allri bóklegri kennslu verður Gunnar Reynisson. Verkefnisstjóri námsins fyrir hönd Endurmenntunar LbhÍ er Ásdís Helga Bjarnadóttir og veitir hún allar nánari upplýsingar um – endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000.














