Fer fram föstudaginn 25. maí og hefst stundvíslega klukkan 8:00. Röð aldursflokka verður eftirfarandi:
– 7v. og eldri hryssur (áætl. 8 holl, ca. 8:00-9:20).
– 6v. hryssur (áætl. 6 holl, ca. 9:30-10:30).
– 5v. hryssur (áætl. 8 holl, ca. 10:40-12:00).
Hádegishlé
– 4v. hryssur (áætl. 2 holl, ca. 13:00-13:20).
– 4v. stóðhestar (áætl. 3 holl, ca. 13:30-14:00).
– 5v. stóðhestar (áætl. 2 holl, ca. 14:10-14:30).
– 6v. stóðhestar (áætl. 3 holl, ca. 14:40-15:10).
– 7v. og eldri stóðh. (áætl. 2 holl, ca. 15:20-15:40).
Áætluð lok yfirlitssýningar eru um klukkan 16:00. Vinsamlegast athugið að tímasetningar eru grófar viðmiðanir og knapar þurfa nú sem fyrr að fylgjast vel með gangi mála, brottfalli úr hollum o.s.frv. Röð flokka verður þó alltaf látin halda sér sem og skipting þeirra fyrir og eftir hádegishlé. Röðun í holl verður birt í kvöld á vef Búnaðarsambands Suðurlands (www.bssl.is) eða sem fyrst eftir að dómum lýkur í dag.
Verðlaun eru veitt þremur efstu hrossum í hverjum flokki og verða þau veitt strax að afloknum hverjum aldursflokki.
BSSL.














