Yfirlitssýningu á Gadstaðaflötum frestað til hádegis

Yfirlitssýningu á Gaddstaðaflötum var frestað vegna veðurs nú í morgun sem átti að hefjast klukkan 8.00. Óðinn Örn sagði í samtali við Hestafréttir nú rétt í þessu að sýningin myndi hefjast klukkan 12.00 og myndi hún örugglega standa til kvölds...

Yfirlitssýningu á Gaddstaðaflötum var frestað vegna veðurs nú í morgun sem átti að hefjast klukkan 8.00. Óðinn Örn sagði í samtali við Hestafréttir nú rétt í þessu að sýningin myndi hefjast klukkan 12.00 og myndi hún örugglega standa til kvölds vegna þessa. Um 100 hross verða sýnd nú á seinni degi yfirlitssýningar.

Aftaka veður var á Gaddstaðaflötum í morgun og gekk á með rigningu og roki, „ekki var annað hægt en að koma á móts við sýnendur og fresta þessu um nokkra tíma“ sagði Óðinn að lokum.